Hrafnkell Isar útskrifast úr High School.

Það hafa verið skrítnir tímar hér í Redmond sem og annarstaðar í heiminum þegar kemur að Covid 19. Hér í Washington fylki eins og annarstaðar í Bandaríkjunum hafa líka verið skipulögð mótmæli eftir kaldrifjað morð lögreglumanns á George Floyd, því hafa líka fylgt gripdeildir og skemmdarverk fólks sem hefur nýtt sér upplausnar ástandið sem hefur skapast. Allt þetta er efni í aðra frásögn sem ekki verður farið í hér.

Mitt í þessu ástandi síðustu mánuði þá eru krakkar að útskrifast úr sínu skólanámi á öllum skólastigum. Undir venjulegum kringumstæðum hefðu þessir síðustu 3 mánuðir verið mjög áhugaverðir fyrir Hrafnkel Ísar Tjörvason. Hann var búin að eiga gott tímabil í fótboltanum og var að sjá fram á mjög skemmtilegan Varsity fótbolta með skólaliðinu sínu í Lake Washington High School. Hinsvegar var öllum skólaviðburðum aflýst í lok Mars, þar á meðal fótbolta. Námið var svo fært úr skólastofnum og á vefinn, sem var svo sem ekki mikil breyting, þar sem stærstur hluti námsefnis og fyrirlestar aðgengilegir á netinu.

Ísar var í vetur svokölluðu running start þar sem hann var í raun í háskólafögum í vetur https://www.lwtech.edu/home.aspx , en útskrifast samt frá https://lwhs.lwsd.org/ . Upplýsingar um útskriftar fyrirkomulag hefur breyst jafnóðum og Ríkistjórinn hefur komið með nýjar tilskipanir um tilslökunar fasa vegna Covid 19. Við erum núna í fasa 2 https://www.governor.wa.gov/ . Skólinn heldur svo úti þessari síðu með plani um hvernig útskriftinni verður háttað þetta árið https://lwhs.lwsd.org/studentsfamilies/seniors-graduation-information . Útskriftin er semsagt í 3 hlutum.

  1. 8 Júní: Útskriftarnemar mæta í skólann samkvæmt stafrófi í skykkjunni (gown) og viðeigandi og taka við útskrifar möppu. Social distance var viðhaft og ætlast til að vera með grímur, nema í myndatöku.
  2. 15 júní: Þá er útskrift á netinu og því sem var tekið upp í dag sent út og allir að fagna bara heima í stofu. Þessi athöfn er venjuleg í Key Arena í Seattle og þegar Embla útskrifaðast þá voru 450 manns að útskrifast og salurinn fullur af fólki.
  3. July/August: Hér vantar ennþá dagsetningu, en þegar kemur fram að fasa 4 í Covid tilslökun þá verður sett á dagskrá að vera með útskriftar athöfn. Það er í raun ekki fyrr en þá sem verður leyfilegt að halda útskriftar veislu t.d.

Þó þetta ástand sé vissulega svekkjandi fyrir Ísar, þá er hann að taka þessu með þokkalega stóískri ró, enda ekki ástand sem hægt er að stjórna.

Í ljósi ástandsins þá hefur verið erfitt að ákveða með háskóla framhald í haust. Hann hefur bæði fengið boð um að spila fótbolta í nokkrum skólum sem eru ekki í WA fylki og svo sótti líka um og fékk inn í skóla í Bellingham WA, hinsvegar í ljósi óvissunnar þá líklega mun hann halda áfram með háskólanámið sem hann var byrjaður á í LWTECH. Áhugaverðir tímar framundan hjá þessum unga manni eigi að síður.