Um

Ég er Héraðsmaður alinn upp á Eskifirði sem býr nú í Kirkland (Seattle) í Bandaríkjunum. Starfaði sem í nokkur ár sem verkstjóri í fiskvinnslu, en hef þó aðallega unnið við forritun ERP kerfa og í dag starfa ég sem verkefnastjóri og tæknilegur ráðgjafi í Bandaríkjunum.

  • Fæddur á Egilsstöðum sem Jökuldælingur og stimpla mig ætíð sem slíkan.
  • Ólst upp á Eskifirði og gekk mín grunnskóla ár þar.
  • Sótti Héraðskólann á Eiðum í tvö ár en útskrifast svo frá ME.
  • Gítarlék í nokkrum óþekktum hljómsveitum.
  • Nam Fiskvinnslufræði í Hafnarfirði.
  • Bjó um stutt skeið á Hornafirði
  • Vann svo í nokkur ár á Eskifirði í verkstjórn í fiskvinnslu
  • Nam Kerfisfræði í TVI/HR
  • Átti mína fyrstu íbúð í Laugardalnum í Reykjavík og bjó þar í nokkur ár.
  • Flutti svo Klukkubergið í Hafnarfirði
  • Giftist stelpunni úr næsta húsi á Eskifirði.
  • Forritaði hjá HugAx í 15 ár
  • Flutti í Egilsstaði og bjó þar í 10 ár og vann áfram við forritun.
  • Stofnaði á Egilsstöðum nokkur fyrirtæki, tók þátt í pólitík og samfélagi.
  • Flutti til Ameríku á Seattle svæðið. Hef búið í Bothell, Redmond og nú í Kirkland.